Eins og fram hefur komið á strandir.saudfjarsetur.is fóru 17. júní hátíðahöld á Hólmavík vel fram. Veðurguðirnir voru að vísu ekki í banastuði og bleyttu örlítið í mannskapnum við og við, en það var engu að síður ágætis veður og í raun betra en oft áður á þjóðhátíðardeginum. Ungmennafélagið Geislinn sá um skipulagningu dagsins, en félagið vill koma á framfæri kærum þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd á plóginn – án þeirra væri ekki hægt að halda upp á hátíðina. Ljósmyndari strandir.saudfjarsetur.is var á ferðinni á Hólmavík og smellti af nokkrum myndum af fólki, fígúrum og fyndnum atvikum.