22/12/2024

Minkur á Fiskmarkaðnum

Helgi Þorvaldsson með steliþjófinnÞegar Helgi Jóhann Þorvaldsson, starfsmaður Fiskmarkaðs Hólmavíkur kom við á fiskmarkaðnum í dag að sækja steinbít sem hann hafði ætlað sér í matinn í kvöld, þá varð uppi fótur og fit því minkur hafði gert sig þar heimakominn og var að gæða sér á kvöldmatnum hans.

Helgi brást ókvæða við og upphófst mikill eltingarleikur inni á Fiskmarkaðnum. Eftir nokkur hlaup, hróp og köll þá lá minkurinn í valnum. Að sögn Helga þá þarf hann ekki að hafa áhyggjur af því að hann svelti, því minkurinn var ekki alveg búinn með kvöldmatinn þegar hann bar að garði.

Þetta er annað skiptið á skömmum tíma sem minkur næst á Fiskmarkaði Hólmavíkur.

.

Minkurinn steindauður eftir að hafa ætlað að aféta Helga.

.

Helgi Þorvaldsson með ófétið í hendinni. Þessi stelur ekki framar. – ljósm. Sigurður M. Þorvaldsson