02/05/2024

Minja- og handverkshúsið Kört enduropnað

KörtÁ tíu ára afmæli Minja- og handverskhússins Kört í Árnesi í Trékyllisvík um liðna helgi var húsið enduropnað með viðhöfn eftir umtalsverðar breytingar og stækkun þannig að rýmra er um gömlu gripina og handverkið. Gestum var boðið í afmælis- og opnunarkaffi og var fjölmenni á staðnum, vel á annað hundrað manns. Húsið er nú meira en helmingi stærra eftir framkvæmdir í vetur og vor og er áningarstaður sem ekki má sleppa að heimsækja á ferðalagi um Árneshreppinn. Það eru Valgeir og Hrefna í Árnesi sem hafa byggt Kört upp og reka húsið. Meðfylgjandi myndir eru frá enduropnun hússins.

Kört

ferdathjonusta/580-kort-opnun4.jpg

ferdathjonusta/580-kort-opnun3.jpg

ferdathjonusta/580-kort-opnun1.jpg

Minja- og handverkshúsið Kört – ljósm. Ingibjörg Valgeirsdóttir og Hrafn Jökulsson