03/05/2024

Litlu jólin á Hólmavík

Litlu jólin

Litlu jólin í Grunnskólanum á Hólmavík voru haldin í dag með pompi og prakt. Allir bekkir skólans sýndu leikþætti, sungu og sprelluðu, áður en gengið var í kringum jólatré og jólasveinar heimsóttu ballið áður en yfir lauk. Frumsamdir leikþættir, kennara- og nemendagrín voru á dagskránni, sögur og helgileikur, bæði í hefðbundinni útgáfu og að hætti Baggalúts. Fjöldi gesta mætti á svæðið og skemmti sér hið besta með nemendunum.

IMG_9051 IMG_9074 IMG_9089 IMG_9092 IMG_9101 IMG_9107 IMG_9121 IMG_9127

IMG_9136 IMG_9157 IMG_9178 IMG_9200 IMG_9203 IMG_9236

Litlu jólin – ljósm. Jón Jónsson.