30/04/2024

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Sweeney Todd

sweeney-Mundipáls

Leikfélag Hólmavíkur hefur undanfarnar vikur æft af kappi leikritið Sweeney Todd – morðóði rakarinn við Hafnargötuna. Leikstjóri er Eyvindur Karlsson. Verkið verður frumsýnt á Hörmungardögum laugardagskvöldið 21. febrúar kl. 20:00 í Félagsheimilinu á Hólmavík. Næstu sýningar verða svo mánudaginn 23. febrúar og laugardaginn 28. febrúar kl. 20:00. Sweeney Todd er eitt af sígildum verkum leikbókmenntanna og býður sýningin upp á magnað ferðalag um tilfinningaskalann – blóð, svita og tár! Athygli er vakin á því að sýningin hentar ekki ungum börnum né viðkvæmum sálum. Börn yngri en 12 ára skulu vera í fylgd með fullorðnum.

Áhugi Strandamanna fyrir leiklist er rómaður og hefur Leikfélag  Hólmavíkur staðið fyrir metnaðarfullum leiksýningum um margra áratuga bil. Þar fá ungir sem aldnir tækifæri til að stíga á stokk og spreyta sig í þeirri merku list að koma fram á sviði. Grunnskólanemendur á staðnum kynnast leiksviðinu snemma og fá mörg tækifæri til að koma fram, sem skilar sér í öflugum leikhóp og eftirminnilegum sýningum. Enda eru kjörorð Leikfélags Hólmavíkur: Það er svo gaman að leika!

Fleiri sýningar verða auglýstar síðar á Facebooksíðu Leikfélags Hólmavíkur og víðar. Miðapantanir eru hjá Ester í síma 693-3474.