27/04/2024

Landssamtök landeigenda stofnuð

Skálholtsvík og GuðlaugsvíkNefnd sem undirbýr stofnun Landssamtaka landeigenda á Íslandi boðar til stofnfundar í Sunnusal Hótels Sögu fimmtudaginn 25. janúar 2007 kl. 16:00. Landssamtökunum er ætlað að berjast fyrir því að eignarréttur landeigenda að jörðum þeirra sé virtur í svokölluðu þjóðlendumáli, eins og kveðið er á um í stjórnarskrá Íslands og í Mannréttindasáttmála Evrópu.


Stofnun landssamtaka landeigenda á rætur að rekja til fjölmenns baráttufundar í Skjólbrekku í Mývatnssveit 30. nóvember 2006 gegn þjóðlendukröfum ríkisins á austanverðu Norðurlandi. Fundarmenn kröfðust þess að fjármálaráðherra afturkallaði þegar í stað kröfur ríkisvaldsins í þinglýstar eignir í Þingeyjarsýslu og  skoruðu
jafnframt á ráðherra og alþingismenn að endurskoða þjóðlendulögin með það að markmiði að virða eignarrétt, þinglýstar landamerkjalýsingar og kaupmála.

Fundarmenn í Skjólbrekku samþykktu að beita sér fyrir stofnun landssamtaka landeigenda á Íslandi til að "sameina krafta þeirra sem hagsmuna eiga að gæta gagnvart þjóðlendukröfum ríkisvaldsins". Nefnd þriggja manna manna var kjörin til að stjórna undirbúningnum og blæs hún nú til stofnfundarins. Í nefndinni eru
Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, Ólafur H. Jónsson, formaður Landeigenda Reykjahlíðar ehf., og Örn Bergsson á Hofi í Öræfum.

Undir þessum tengli er hægt að nálgast umboðsform fyrir stofnfund Landssamtaka landeigenda. Þeir sem áhuga hafa en komast ekki sjálfir á fundinn, geta þá fengið einhvern sem fer til að fara með umboð fyrir sig.