25/04/2024

Kviss, Búmm, Bang í Skelinni

Eva Rún Snorradóttir, Vilborg Ólafsdóttir og Eva Björk Kaaber eru framandverkaflokkurinn Kviss, Búmm, Bang! Þær verða með opið hús í Skelinni á Hólmavík í kvöld kl. 20.00 og bjóða upp á óvænta uppákomu. Hér á vef framandverkaflokksins má fræðast um verk þeirra og hugmyndafræði: www.kvissbummbang.com. Skelin er til húsa í Hólmakaffi að Hafnarbraut 7 og er verkefni Þjóðfræðistofu, lista- og fræðimannadvöl á Ströndum. Þar hafa verið fjölmargir viðburðir í vetur.