24/04/2024

Kökusala í anddyri KSH í dag

Nemendur í 8. og 9. bekk Grunnskólans á Hólmavík standa fyrir kökubasar í anddyri Kaupfélags Steingrímsfjarðar í dag, föstudaginn 13. nóv. Eru þeir að safna fyrir Danmerkurferð sem fyrirhuguð er næsta haust, en gagnkvæmar og árlegar heimsóknir við vinabæ Hólmavíkur í Danmörku hafa sett svip á skólastarfið á Hólmavík. Hefst kökusalan kl. 14:30 og einnig verður á boðstólum harðfiskur, lakkrís og plastpokar.