![Sigurliðið 2005 - Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík Sigurliðið 2005 - Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík](wp-content/uploads/atburdir/2005/150-sigurlid_spurn05.jpg)
Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík sigruðu Spurningakeppni Sauðfjársetursins þetta árið. Slógu þeir Hólmadrang út í undanúrslitum 24-23 og sigruðu síðan fréttaritara á strandir.saudfjarsetur.is í úrslitaviðureign 27-20, en fréttamenn höfðu áður sigrað skrifstofu Hólmavíkurhrepps 32-23. Keppnirnar voru býsna spennandi og var sigur kennaranna verðskuldaður. Fengu þeir Viskubikarinn til varðveislu í eitt ár að launum, auk veglegrar bókagjafar frá Eddu útgáfu.
Sigurlið kennara við Grunnskólann á Hólmavík – Hildur Guðjónsdóttir, Kristján Sigurðsson og Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir.