17/05/2024

Karaoke-keppni og dansleikur á föstudaginn

 Það verður mikið um dýrðir á Hólmavík á föstudaginn, 28. október. Þá fer fram sjöunda karaoke-keppni Café Riis í í Bragganum á Hólmavík. Að vanda mun fjöldi keppenda stíga á svið, en nöfn þeirra verða birt hér á vefnum einhvern næstu daga. Æfingar hefjast í Bragganum í kvöld, en frést hefur að vinningar í ár séu sérstaklega veglegir. Eftir keppnina verður síðan ball á Café Riis með lífsreyndustu hljómsveit á Íslandi; GRM, Gylfa, Rúnari og Megasi. Í gegnum árin hafa tugir keppenda stigið á svið í karaoke-keppninni, en sigurvegarar fyrri ára eru Stefán Steinar Jónsson, Sigurður Vilhjálmsson, Salbjörg Engilbertsdóttir, Árdís Rut Einarsdóttir, Eyrún Eðvaldsdóttir og í fyrra vann Barbara Ósk Guðbjartsdóttir.