27/04/2024

Jólatré frá Hole í Noregi, vinabæ Hólmavíkur


Norðmenn koma færandi hendi til Hólmavíkur að venju rétt fyrir jólin, en fulltrúar frá Hole, vinabæ Hólmavíkur í Noregi, mæta á Strandir í kvöld með jólatré í farteskinu. Ætlunin er að kveikja á trénu við hátíðlega athöfn í dag, mánudaginn 10. desember kl. 18:00, og eru allir hjartanlega velkomnir á þann merkisviðburð. Tréið er við Grunnskólann á Hólamvík að venju. Sumarblíða er nú á Ströndum.