04/05/2024

Jólamarkaður Strandakúnstar undirbúinn


Núna í ár verður jólamarkaður handverkshópsins Strandakúnstar á Sauðfjársetrinu í Sævangi og verður opið helgarnar 8.-9. og 15.-16. desember og einnig laugardaginn 22. desember. Opið verður frá klukkan 14:00-18:00 alla þessa daga. Til sölu verður allskyns handverk, minjagripir og gjafavara. Í kaffistofunni verður kaffi, kakó og vöfflur á boðstólum. Þeir sem eru með söluvarning snúa sér til Ásdísar Jónsdóttur s. 694-3306 eða koma með sölugóss í Sævang föstudaginn 7. des. milli kl. 12:00-14:00. Lesendur strandir.saudfjarsetur.is eru hvattir til að versla jólagjafirnar í heimabyggð og minntir á handverk, minjagripir og gjafavara, listir og menning, eru úrvals gjafir.