Foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík stóð á dögunum fyrir jólaföndri í Félagsheimilinu. Að þessu sinni fengu gestir að spreyta sig á postulínsmálun. Margir komu líka með föndur að heiman til að vinna í. Bæði börn og fullorðnir fjölmenntu á svæðið og skemmtu sér konunglega við jólatónlist og föndur, supu á heitu súkkulaði og smökkuðu á piparkökum. Jólasveinn mætti á svæðið og gaf börnunum gott í gogginn. Kvöldið var vel heppnað og margir sýndu góð tilþrif í föndrinu.
Jólaföndur í Félagsheimilinu. Á neðstu myndinni er stjórn foreldrafélagsins. – ljósm. Jón Jónsson.