03/05/2024

Héraðsmót HSS í frjálsum íþróttum

580-heradsmot83-3 Héraðsmót HSS í frjálsum íþróttum fer fram á Sævangsvelli sunnudaginn 15. júlí og hefst kl. 13:00. Frjálsíþróttafólki úr nágrannabyggðarlögum og hvaðanæva að af landinu er velkomið að skrá sig og taka þátt. Örlítil breyting hefur verið gerð á aldursflokkaskiptingu á mótinu til að koma til móts við þyngdir áhalda í kastgreinum, en annars verður mótið með hefðbundnu sniði. Tilboð verður á vöfflum og ís alla helgina hjá Sauðfjársetrinu í Sævangi, en félagsheimilið á einmitt 55 ára vígsluafmæli.

Keppnisgreinar eru eftirfarandi:
Strákar og stelpur 11 ára og yngri: 60 m. hlaup, langstökk og boltakast.
Strákar og stelpur 12-13 ára: 60 m. hlaup, langstökk, kúluvarp og spjótkast.
Strákar og stelpur 14-15 ára: 100 m. hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp og spjótkast.
Konur 16-29 ára: 100, 800, 1500 og 4x100m boðhlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast og spjótkast.
Karlar 16-34 ára:  100, 800, 1500 og 4x100m boðhlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast og spjótkast.
Konur 30 ára og eldri:  100, 800m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast og spjótkast.
Karlar 35 ára og eldri:  100, 800m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast og spjótkast.
Forsvarsmenn aðildarfélaga taka við skráningum fyrir sitt félag. Skráningum skal skila í síðasta lagi laugardaginn 14. júlí kl: 13:00.Frjálsíþróttafólk í UDN (Dalamenn og Reykhólasveit) og USVH (V-Húnvetningar) er sérstaklega boðið velkomin á mótið.

Nánar á www.123.is/hss.