26/04/2024

Heilsugæslan á Café Riis á miðvikudag

Kómedíuleikhúsið sýnir hinn hápólitíska gamanleik Heilsugæslan á Café Riis á Hólmavík miðvikudaginn 7. október og hefst sýningin kl. 20.30. Í kynningu segir að Íslendingar hafi löngum státað af besta heilbrigðiskerfi í heimi. Við hrósum okkur yfir háum meðalaldri, þjónustu í hæsta gæðaflokki og frábærum læknum. En er kerfið eins gott og af er látið? Er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum? Er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði? Hvaða tilgangi þjónar góð heilsa? Metum við líf í magni eða gæðum? Leikritið Heilsugæslan er samið af Lýð Árnasyni lækni og gefur áhorfandanum sýn inn í þetta völundarhús og það sem býr að tjaldabaki.

Heilsugæslan er gamanleikur og öll hlutverk í höndum tveggja leikara, þeirra Elfars Loga Hannessonar og Margrétar Sverrisdóttur. Heilsugæslan er hápólitískt leikrit og umfjöllunarefnið brennandi á íslenzku þjóðfélagi, ekki sízt núna, í skugga niðurskurðar. Heilsugæslan er fyrir alla!