27/04/2024

Halla skáldkona í Þróunarsetrinu

Í dag klukkan 15:00, föstudaginn 10. júní, opnar Þjóðfræðistofan á Hólmavík sýningu Guðfinnu M. Hreiðarsdóttur sagnfræðings um Höllu skáldkonu frá Laugarbóli (1866-1937). Sýningin sem ber heitið "Svanurinn minn syngur" er hluti af meistaraprófsverkefni Guðfinnu í Hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands.  Þjóðfræðistofa fékk sýninguna frá Reykhólum en hún var fyrst sett upp í Safnahúsinu á Ísafirði haustið 2008 og á sama tíma var gefin út bók með úrvali ljóða skáldkonunnar og æviágripi hennar.  Þessi stórskemmtilega sýningin hefur víða verið sett upp  og tekur Þjóðfræðistofa fagnandi við henni nú.

Halla Eyjólfsdóttir var húsfreyja á stórbýlinu Laugabóli við Ísafjarðardjúp frá lokum 19. aldar og fram á fyrri hluta 20. aldar. Hún var ekki einungis fjórtán barna móðir heldur lenti öll bústjórn að miklu leyti á henni þar sem eiginmaður hennar, Þórður Jónsson, var formaður á eigin skipi og því lítið heima við. Guðfinna segir í bók sinni um Höllu: „Þótt hlutskipti Höllu yrði að stjórna stóru búi mestan hluta ævinnar, þá var skáldskapurinn hennar hjartans mál. Hún gat hins vegar aðeins sinnt honum í hjáverkum og í ljóðum hennar urðu fuglar himinsins og himinhnettirnir táknmyndir hins frjálsa anda með lausn frá amstri hversdagslífsins.

Sýning er á neðstu hæð þróunarsetursins, heitt verður á könnunni og eru allir velkomnir.