20/04/2024

Fundur um markaðsetningu á Café Riis

Kotbýli kuklarans

Íslandsstofa og Markaðsstofa Vestfjarða boða til samtals aðila í ferðaþjónustu og tengdra hagsmunaaðila og er fundur á Café Riis á Hólmavík miðvikudaginn 26. febrúar frá 9:00-12:00. Á fundinum er ætlunin að ræða möguleika á að stilla enn frekar saman strengi í markaðssetningu landshluta og á landsvísu. Spurt er hvaða árangri vilji er til að ná í ferðaþjónustunni í framtíðinni og hvað sé árangur í huga ferðaþjóna? Hvernig bæta megi samvinnu og nýta betur þá markaðssetningu sem fer fram? Á fundinum verða Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðuaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu og Díana Jóhannsdóttir, Markaðsstofu Vestfjarða sem mun stýra fundinum. Skráning fer fram hjá Díönu í netfangið: travel@westfjords.is.