Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur birt lista yfir framlög sín í nokkrum flokkum til sveitarfélaga á árinu 2006. Strandabyggð fær mest af sveitarfélögunum á Ströndum í þessum flokkum eða samtals rúmar 67, milljónir, en sveitarfélagið kemur fram sem Hólmavíkurhreppur og Broddaneshreppur í töflunum hér að neðan. Jöfnunarsjóðir styður sveitarfélög á mörgum öðrum sviðum, s.s. til reksturs grunnskóla, vegna nýbúafræðslu, vegna sérþarfa fatlaðra nemenda, til húsaleigubóta, vegna vatnsveitna á lögbýlum og vegna fjárhagserfiðleika eða sameiningar sveitarfélaga svo dæmi séu nefnd.
Framlög til útgjaldajöfnunar:
Stór hluti framlags Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga er til útgjaldajöfnunar. Sveitarfélögin fá framlög vegna ákveðinna þátta sem eru erfiðir í rekstri eins og t.d. framlög til skólaaksturs í dreifbýli sem jöfnunarsjóður borgar að mestu leyti, vegna fjarlægða innan sveitarfélags til að þjónusta sé sambærileg til íbúa óháð búsetu innan þess, vegna fækkunar ibúa, íbúafjölda og snjómoksturs í þéttbýlisstöðum. Ekkert sveitarfélag á Ströndum fær framlag úr sérstökum flokki sem miðast við að fleiri en eitt þéttbýli sé í sveitarfélaginu.
Íbúafjölda |
Fjarlægðir |
Skólaakstur |
Fækkun |
Snjómokstur |
Samtals |
|
Sveitarfélag |
framlög |
sv.félaga |
í dreifbýli |
íbúa |
í þéttbýli |
útg.framlög |
Árneshreppur |
78.124 |
40.654 |
30.099 |
0 |
0 |
148.878 |
Kaldrananeshreppur |
2.731.880 |
3.381.999 |
601.057 |
254.121 |
489.972 |
7.459.029 |
Bæjarhreppur |
3.213.829 |
384.924 |
11.021.970 |
0 |
0 |
14.620.723 |
Broddaneshreppur |
1.582.304 |
470.923 |
2.528.863 |
0 |
0 |
4.582.090 |
Hólmavíkurhreppur |
12.712.352 |
11.138.431 |
5.500.942 |
965.659 |
859.257 |
31.176.642 |
Framlag til tekjujöfnunar milli sveitarfélaga
Framlög til tekjujöfnunar sveitarfélaga miðast við útsvarsgreiðslur frá íbúum í hverju sveitarfélagi árið áður. Þau sveitarfélög fá framlög sem fá greitt lægra útsvar af tekjuskatti en önnur af sambærilegri stærðargráðu, væntanlega vegna þess að á þeirra svæði tíðkast lægri laun en í svipuðum sveitarfélögum.
|
Hámarkstekjur |
94,5% af |
Mismunur |
Endanlegt |
Sveitarfélög |
á hvern íbúa |
viðm.tekj. |
á hvern íbúa |
framlag |
Árneshreppur |
327.227 |
242.772 |
-84.455 |
0 |
Kaldrananeshreppur |
273.473 |
288.360 |
14.887 |
1.667.372 |
Bæjarhreppur |
200.355 |
242.772 |
42.417 |
4.453.739 |
Broddaneshreppur |
266.653 |
242.772 |
-23.881 |
0 |
Hólmavíkurhreppur |
271.132 |
288.360 |
17.228 |
7.700.952 |
700 milljóna aukaframlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2006
Að tillögu tekjustofnanefndar greiðist árlega sérstakt 700 milljón króna aukaframlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árunum 2006-2008. Því er ætlað að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf fyrir viðbótarframlag vegna þróunar í rekstrarumhverfi þeirra og erfiðra ytri aðstæðna.
Ákveðið var að árið 2006 yrði helmingur þessarar greiðslu nýttur í framlag vegna íbúafækkunar á árunum 2001-2005. Hinn helmingurinn kemur til sveitarfélaga þar sem hlutfallsleg hækkun útsvarsstofns milli áranna 2000 og 2005 er lægri en hlutfallsleg hækkun ársmeðaltals launavísitölu á sama tíma.
Þessi framlög koma þannig aðeins ef staðan hefur versnað í sveitarfélögum síðustu ár. Sveitarfélag fær aðeins sinn hluta af þessari aukagreiðslu ef heimild þess til útsvarsálagningar fyrir tekjuárið 2006 er fullnýtt af sveitarstjórn eða 13,03%, sem gæti verið ástæðan fyrir að Bæjarhreppur fær ekki framlag.
|
Framlag vegna |
Framlag |
|
|
vegna íbúa- |
vegna þróunar |
Samtals |
Sveitarfélag |
fækkunar |
útsvarsstofns |
útg.framlög |
Árneshreppur |
1.259.446 |
295.176 |
1.554.622 |
Kaldrananeshreppur |
2.267.003 |
3.104.531 |
5.371.533 |
Bæjarhreppur |
0 |
0 |
0 |
Broddaneshreppur |
3.652.393 |
1.129.391 |
4.781.784 |
Hólmavíkurhreppur |
5.919.395 |
7.692.501 |
13.611.896 |
Framlög til jöfnunar á tekjutapi sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti:
Ákveðin hluti framlaga Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaganna er hugsaður til að mæta tekjutapi sveitarfélaga í kjölfar breytinga á álagningarstofni fasteignaskatts frá því 2001.
|
Endanlegt |
Sveitarfélög |
framlag |
Árneshreppur |
3.942.947 |
Kaldrananeshreppur |
3.376.449 |
Bæjarhreppur |
1.875.249 |
Broddaneshreppur |
1.927.308 |
Hólmavíkurhreppur |
13.308.650 |