Fólki á Vestfjörðum fjölgar á milli ára, bæði í strjálbýlinu og einnig á ýmsum þéttbýlisstöðum. Mest er fjölgunin í Bolungarvík þar sem íbúum fjölgar um 58, en Ísafjörður kemur þar skammt á eftir með 40 fleiri íbúa 1. desember 2008 en á sama tíma 2007. Þá fjölgar um 13 á Tálknafirði á milli ára. Á fimm þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum fækkar íbúum milli ára, um 5 á Patreksfirði, 8 í Krossholti (sem var fyrir fámennasti byggðakjarni á landinu), 12 á Hólmavík, 28 á Flateyri og 33 á Þingeyri. Fjölda íbúa á hverjum stað má finna í tölfu hér fyrir neðan.
Mannfjöldi 1. desember | |||
Byggðarkjarni |
2007 |
2008 |
Fjölgun/fækkun |
Bolungarvík |
904 |
962 |
58 |
Ísafjörður |
2693 |
2733 |
40 |
Tálknafjörður |
275 |
288 |
13 |
Strjálbýli |
721 |
733 |
12 |
Suðureyri |
304 |
312 |
8 |
Drangsnes |
61 |
68 |
7 |
Hnífsdalur |
235 |
242 |
7 |
Reykhólar |
129 |
133 |
4 |
Bíldudalur |
175 |
176 |
1 |
Súðavík |
180 |
181 |
1 |
Borðeyri |
25 |
25 |
0 |
Patreksfjörður |
622 |
617 |
-5 |
Krossholt |
19 |
11 |
-8 |
Hólmavík |
381 |
369 |
-12 |
Flateyri |
287 |
259 |
-28 |
Þingeyri |
298 |
265 |
-33 |
Heimild: Hagstofa Íslands |