Í fréttatilkynningu frá Upplýsinga-miðstöðinni á Hólmavík kemur fram að framundan er fjöldi skemmtilegra atburða víðs vegar um sýsluna. Um helgina verður auðvitað þjóðhátíðarstemmning og síðan verða haldnir Furðuleikar í annað skipti á Sauðfjársetrinu í Sævangi á sunnudag. Fleiri atburðir eru fyrirhugaðir og hér á eftir fer yfirlit yfir þá atburði sem Upplýsingamiðstöðin hefur fengið tilkynningar eða vitneskju um. Svo er bara að vona að allir skemmti sér hið besta:
17. júní – fös. Hátíðahöld á Hólmavík. Sundkeppni í sundlauginni kl. 11:00, 100 metra sund með frjálsri aðferð. Kl. 13 hittast menn í kirkjuhvamminum, blöðrusala og fleira, trampolín og andlitsmálun, fjallkonan fer á kostum. Kl. 14. Lagt af stað í skrúðgöngu að Íþróttamiðstöðinni. Þar verður ávarp, söng og tónlistaratriði, gúmmíbátaróður, koddaslagur og fleira. Um kvöldið milli 19:30 og 21:00 verður síðan Sundlaugapartý í sundlauginni.
19. júní – sun. Furðuleikar á Ströndum verða haldnir í annað sinn. Það er Sauðfjársetrið í Sævangi sem stendur fyrir leikunum. Þarna er á ferðinni leikjadagur fyrir alla fjölskylduna. Gestir keppa er í margvíslegum furðugreinum og hefst skemmtunin kl. 14. Leikfélag Hólmavíkur setur svip á daginn. Kaffihlaðborð í Sauðfjársetrinu 14-18.