02/05/2024

Ferðamálasamtökin gera kauptilboð í Vesturferðir

Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa gert kauptilboð í meirihluta í
ferðaskrifstofunnar Vesturferðir á Ísafirði. Ætlunin með kaupunum er að tryggja
öfluga upplýsinga- og sölugátt með skilvirkri bókunarþjónustu sem allir
ferðaþjónustuaðilar í fjórðungnum hafi aðgang að. Unnið verður í nánu samstarfi
við Markaðsstofu Vestfjarða og vefgáttin westfjords.is verður einnig nýtt til
kynningar og sölu á vöru og þjónustu sem er í boði hverju sinni á svæði
Ferðamálasamtaka Vestfjarða.

Með kaupunum mun gefast tækifæri fyrir
öflugri samvinnu meðal allrar ferðaþjónustunnar með því að opna einn risastóran
markað á vestfirskri ferðaþjónustu og opna sölugátt þar sem hægt verður að
versla beint allar þær vörur sem eru í boði í greininni. Gisting, afþreying, ferðapakkar og hvað annað sem vestfirsk ferðaþjónusta hefur
upp á að bjóða verði öll á einum stað og viðskiptavinir munu ekki þurfa að
velkjast um hvað er í boði í fjórðungnum. Auk þess eiga viðskiptavinir að geta
verslað alla þjónustu sem þeim þóknast beint frá Vestfjörðum áður en af stað er
haldið. Eins og staðan er í dag þá getur verið frekar flókið að átta sig á því
hvað er raunverulega í boði í fjórðungnum og skilaboð eru oft
misvísandi.

Ætlunin er að mjög breið samstaða verði um eignarhald
Vesturferða og félagið verði nýtt sem allsherjar bókunarmiðstöð fyrir vestfirska
ferðaþjónustu. Hagnaður af bókunargjöldum félagsins mun renna til
markaðssetningar alls fjórðungsins og stórauka þannig fjármagn til
markaðssetningar. Öllum verður gefinn kostur á að kaupa hlut í félaginu en
Ferðamálasamtökin munu strax selja stóran part af 53% hluta sínum í Vesturferðum
og stefnt er að því að auka nokkuð hlutafé í félaginu. Þannig mun öllum gefast
kostur á að kaupa hluti upp á 50 þús til 500 þús krónur á næstunni og verða um
leið meiri áhrifaaðilar fyrir markaðssetningu fjórðungsins.

Ef af
kaupunum verður er ætlunin að breyta nöfnum Vesturferða / West Tours og nota
frekar heiti sem gefur skýrt til kynna á hvaða svæði á Íslandi ferðaskrifstofan
starfar. Ekki er þó stefnt að því að verulegar breytingar muni eigi sér stað á
rekstri Vesturferða fyrst um sinn. Það verður ekki ráðist í breytingar á
rekstrinum á einni nóttu og tryggt verður að staðið verði við alla samninga sem
fyrir liggja gagnvart viðskiptavinum félagsins. Framundan er mikil
stefnumótunarvinna innan fyrirtækisins sem þarf að liggja fyrir á næstu
vikum.

Fyrirkomulag þessarar aðferðarfræði er sótt til reynslu
sveitarfélagsins Levi í Finnlandi. Levi er bær sem fær um 600.000
ferðamenn á ári, en fyrir 30 árum kom þangað varla nokkur ferðamaður.
Fyrirkomulagið einkennist af samvinnu og samræmingu. Markaðsstofan þar rekur
upplýsingamiðstöð, viðburðarþjónustu, bókunarþjónustu og margt fleira.
Ferðaþjónar greiða fasta upphæð á ári og svo bókunargjald. Markaðsstofan í Levi
hefur því til umráða 2,5 miljónir € til markaðsaðgerða en heildarframlag
opinberra aðila er þar innan við 14%.

Það er nokkuð fyrirsjáanlegt að fé
frá opinberum aðilum til greinarinnar muni fara minnkandi á komandi árum. Auk
þess er fyrirséð að ákvörðunarréttur Markaðsstofu Vestfjarða um nýtingu þeirra
fjármuna verður einnig skertur. Því er það nauðsynlegt að vestfirsk
ferðaþjónusta snúi strax vörn í sókn og sæki fram í krafti samvinnu allra
ferðaþjónustuaðila í fjórðungnum.

Þó það sé ekki beinlínis ætlunin að
sækja fleiri hundruð þúsund ferðamanna á Vestfirði með þessari aðferð, þá er það
alveg ljóst að miðað við núverandi fyrirkomulag á markaðssetningu íslenskrar
ferðaþjónustu þá eru Vestfirðir ekki að fá þann hlut sem þeir ættu að geta með
betur samræmdu markaðs- og bókunarkerfi. Í dag eru Vestfirðir með 3%
markaðshlutdeild í erlendum gistinóttum. Þannig hefur það verið um nokkurn tíma.
Með þessari aðferð hafa Vestfirðingar betri stjórn á því hvaða skilaboð eru send
til umheimsins sem varða vestfirska ferðaþjónustu.

Vestfirsk
ferðaþjónusta hefur skorað hátt í könnunum undanfarið og umfjöllun áberandi
miðla eins og Lonely Planet sýna það svart á hvítu að sérstaða Vestfjarða er
algjör. Það hlýtur að vera undir okkur sjálfum komið að selja vörur okkar. Það
er nokkuð augljóst að það kerfi sem unnið hefur verið með hefur ekki verið að
virka eins og best verður á kosið. Samvinna er lykilorðið. Samvinna er það sem
fyrst og fremst hefur fært ferðaþjónustuna í sveitarfélaginu Levi í Finnlandi
fram á veginn svo dæmi sé tekið.

Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða verður haldinn um næstu helgi, þann 2. apríl. Dagskrána er að finna á heimasíðu samtakanna www.vestfirskferdamal.is.