Í fréttatilkynningu frá menningarmálanefnd Hólmavíkurhrepps kemur fram að dægurlagasamkeppni vegna Hamingjudaga á Hólmavík í sumar verður haldin laugardaginn 27. maí. Keppnin er haldin í félagsheimilinu á Hólmavík og hefst klukkan 21:00. Þrettán lög bárust í keppnina og verða þau flutt á staðnum og síðan velja áheyrendur sigurlagið. Nafni höfunda laganna er haldið leyndum þar til úrslit liggja fyrir og lögin eru kynnt undir dulnefni. Atkvæðaseðill fylgir aðgöngumiða en aðgangseyrir er kr. 1.000.- fyrir 12 ára og eldri.
Eftirtalin þrettán lög verða flutt í keppninni og verða þau flutt í þessari röð í keppninni:
|
Lag |
Flytjandi |
Dulnefni höfundar |
1 |
Hólmavík |
Jón Halldórsson |
12. júní |
2 |
Komdu með |
|
Esi |
3 |
Á hamingjudögum |
Aðalheiður Lilja og Bjarni Ómar |
Hómer |
4 |
Hamingjudagar |
Hjörtur Númason |
Dötti |
5 |
Eldur |
Eyþór Rafn Gissurarson |
Keikó |
6 |
Hamingjudagar |
Jón Halldórsson |
Kallminn |
7 |
Sumar á Hólmavík |
Arnar Jónsson |
Skrattinn sjálfur |
8 |
Strandablús |
Aðalheiður Lilja |
Strandaskotta |
9 |
Vikivaki |
Jón Halldórsson |
Búri |
10 |
Fljúgðu þöndum |
Harpa Óskarsdóttir |
Sigfinnur Sjutt |
11 |
Álfkonan |
Gunnlaugur Bjarnason |
Bassi |
12 |
Skýjaborgir |
María Mjöll og Salbjörg |
Tommi og Jenni |
13 |
Á Hólmavík |
Kristján Sigurðsson |
√π |