Eitt af því sem vakti athygli fólks á Hamingjudögum á Hólmavík var ofurhugi sem lék sér á sjóskíðum í og við höfnina á laugardagsmorgninum. Hetjan var hreint ekki bangin við að láta draga sig á ofsahraða fram og til baka eftir sjónum og lét sér ekki bregða þrátt fyrir harðar byltur við og við – alltaf var staðið upp og haldið áfram þaðan sem frá var horfið. Tilburðir kappans, sem mun hafa verið Gauti Már Þórðarson frá Hólmavík, vöktu mikla lukku landkrabbanna sem á horfðu. Ljósmyndari strandir.saudfjarsetur.is var einn af þeim sem sáu til uppátækisins og hann náði að smella af örfáum myndum.
Kempan dottin kylliflöt…
…rétt að halda strax af stað aftur…
…út á ballarhaf.
Ljósm. Arnar S. Jónsson