25/04/2024

Bjarni á Fönix og Jón Sigurðsson heimsækja Strandir

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði er nú í heilmikilli leikferð þar sem tveir einleikir eru sýndir 16 sinnum á jafnmörgum dögum og stöðum. Meðal annars er sýnt í Samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi í kvöld kl. 20:00 og á Café Riis á Hólmavík á þriðjudagskvöld kl. 20:00. Miðvikudagskvöld verður sýnt á Reykhólum. Eru þetta leikritin Jón Sigurðsson, strákur að vestan og Bjarni á Fönix. Miðaverð á sýningarnar er kr. 1.900.-
 

 
Sýningarplanið er eftirfarandi:

9. september föstudagur kl.20.00: Búðardalur – Leifsbúð
10. september laugardagur kl.20.00: Rif – Frystiklefinn
11. september sunnudagur kl.20.00: Grundarfjörður – Kaffi 59
12. september mánudagur kl.20.00: Drangsnes – Samkomuhúsið Baldur
13. september þriðjudagur kl.20.00: Hólmavík – Café Riis
14. september miðvikudagur kl.20.00: Reykhólar – Báta og hlunnindasalurinn
15. september fimmtudagur kl.20.00: Barðaströnd – Birkimelur
16. september föstudagur kl.20.00: Patreksfjörður – Sjóræningjahúsið
17. september laugardagur kl.20.00: Tálknafjörður – Dunhagi
18. september sunnudagur kl.20.00: Bíldudalur – Vegamót
19. september mánudagur kl.20.00: Ísafjörður – Hamrar
20. september þriðjudagur: Flateyri – Vagninn
21. september miðvikudagur: Suðureyri – Talisman
22. september fimmtudagur: Þingeyri – Veitingahornið
23. september föstudagur: Bolungarvík – Félagsheimilið
24. september laugardagur: Súðavík – Melrakkasetrið