18/04/2024

Jólamarlaður Strandakúnstar opnar á morgun

Jólahandverksmarkaður Strandakúnstar opnar á morgun og verður að þessu sinni á
Galdrasafninu á Hólmavík. Þar verður að vanda margvíslegur söluvarningur í boði,
sokkar, vettlingar, húfur og önnur hlýlegheit sem gagnast vel í óveðrum
vetrarins. Að auki verður þar ýmislegt annað handunnið góss og góðgæti á
boðstólum. Jólamarkaður Strandakúnstar verður opinn alla daga fram að jólum frá
klukkan 14:00 – 18:00. Ásdís Jónsdóttir sér um jólamarkaðinn að vanda og hún
segir að það sé aldrei að vita nema jólasveinar slæðist inn þegar líður á
vikuna. Hún vill benda þeim á sem eru með sölugóss að komið því til hennar á
markaðinn eða á Höfðagötu 7. Síminn hjá Ásdísi er 694 3306. "Það verður líka
opið á Þorláksmessu," segir Ásdís glaðhlakkanleg að vanda.