02/05/2024

Beðið eftir útboðum

Allt í hægaganginumEkkert bólar á útboðum á vegaframkvæmdum sem kynnt hafði verið að farið yrði í á þessu ári í Hrútafjarðarbotni og í Bitrufirði. Fyrirhugað hefur verið síðan á síðasta ári að bjóða út og hefja vinnu við hringveginn um Hrútafjarðarbotn þar sem legu vegarins verður breytt, þannig að leiðin milli Stranda og Húnvetninga styttist um nokkra kílómetra. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar í vor átti einnig að fara í breikkun einbreiða malbiksins í Bitrufirði nú í haust, en það verkefni hefur ekki verið boðið út. Þá bólar ekkert á nýrri brú yfir Bjarnarfjarðará, en fjárveiting í hana er til ónotuð frá árinu 2006.

Á Djúpvegi nr. 61 er á nokkrum stöðum ennþá einbreitt malbik. Verst er það farið í Bitrufirði milli Óspakseyrar og Tunguár, þar sem undirlagið hefur ekki þolað þungaflutninga liðinna ára og yfirborðið er í meira lagi öldótt og hjólför eru á köflum djúp. Vegurinn í Bitrunni utan við Óspakseyri allt að Brekku hefur einnig verið til vandræða og á þeim kafla hafa margar bílveltur orðið. Þar er undirlagið í köntunum of sendið og laust í sér. Þegar þungir bílar eru að mætast á einbreiða slitlaginu þurfa auðvitað báðir að fara út á kantana og þá hættir kantinum til að skríða undan þunga bílanna og hafa bæði vanir og óvanir lent þar í vandræðum og veltum.

Skapast oft hætta þegar óvanir bílstjórar mætast í Bitrunni, því mönnum hættir til að þora ekki út fyrir slitlagið þegar þeir mæta öðrum farartækjum. Ef viðhald á köntunum er ekki gott getur verið dálítill hæðarmunur á og hrökkva menn þá við. Eins þarf maður stundum að prísa sig sælan fyrir að hafa sloppið heill á húfi eftir að hafa mætt á þessum slóðum ökumönnum sem hafa gleymt því stundarkorn hvað þeir eru með breið fellhýsi eða sumarhús í eftirdragi. Á vegi þar sem flutningabíll og móturhjól geta ekki mæst með góðu móti kann það ekki góðri lukku að stýra.

Einbreitt slitlag er einnig á Djúpvegi á dálitlum kafla í Seyðisfirði vestra og nær rétt yfir í Hestfjörð, en undirlagið ber sig betur þar. Þá var einbreitt slitlag í Álftafirði innan við Súðavík, en nú í haust hefur verið hafist handa við að breikka það og lagfæra, eins og gert var í Hrútafirði á árunum 2005-6. Var kominn tími til á báðum stöðum og sama gildir svo sannarlega um Bitruna og Seyðisfjörðinn.

Á leiðinni út að Reykhólum frá Vestfjarðavegi við Bjarkalund er einnig einbreitt slitlag á stuttum kafla. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is var þar á ferð í upphafi mánaðar og furðaði sig þá mjög á lélegu viðhaldi vegarins þar, en verulegur hæðarmunur var á slitlaginu og kantinum utan við það. Örugglega vel yfir 10 sentimetrar þar sem verst var.