
Af öðrum málum sem tekin voru fyrir á fundinum má nefna að Hólmavíkurhreppur samþykkti að hafna því að leggja fjármagn í stofnun markaðsskrifstofu ferðamála á Vestfjörðum, sem rætt hefur verið um á vettvangi Fjórðungssambands Vestfirðinga. Bókaði fundurinn að hreppsnefnd sjái ekki ávinning í að taka þátt í verkefninu að svo stöddu.
Á hinn bóginn var tekið fyrir erindi um sögukort fyrir Vestfirði frá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustunnar og var samþykkt að Hólmavíkurhreppur styrki útgáfuna með kr. 250.000.- ef heildarfjármögnun fæst.
Á fundinum sátu hreppsnefndarmennirnir Haraldur V.A. Jónsson oddviti, Valdemar Guðmundsson, Eysteinn Gunnarsson, Kristín S. Einarsdóttir og Björn Hjálmarsson varamaður. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.
Vefur Hólmavíkurhrepps er á slóðinni: www.holmavik.is.