02/05/2024

Atvinnusköpun í sjávarbyggðum

Iðnaðarráðuneyti í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands auglýsir eftir umsóknum í styrki til verkefnisins Atvinnusköpun í sjávarbyggðum. Styrkirnir byggja á tekjum af sölu aflaheimilda fiskveiðiárin 2009/2010 og 2010/2011 til að veiða skötusel og til frístundaveiða, sbr. lög um stjórn fiskveiða. Atvinnusköpun í sjávarbyggðum er tímabundinn verkefnasjóður sem hefur það að markmiði að skapa varanleg störf, efla atvinnusköpun og auka fjölbreytni atvinnulífs í sjávarbyggðum. Rafræn umsóknareyðublöð má finna á www.nmi.is/impra og er umsóknarfrestur til og með 15. apríl 2011.

Áhersla verkefnisins er á hagnýtingu nýrra hugmynda og leitast verður eftir því að styðja verkefni sem fela í sér nýsköpun, þekkingaryfirfærslu og hugverk. Stuðningur getur m.a. falist í viðskipta- og vöruþróun, markaðssókn og erlendri markaðsfærslu.

Atvinnusköpun í sjávarbyggðum leitar eftir verkefnum sem fela í sér ný atvinnutækifæri og byggja á styrkleikum sjávarbyggða. Hvatt er sérstaklega til stærri samstarfsverkefna fyrirtækja, háskóla og rannsóknastofnanna þar sem fram koma skýrar hugmyndir um afurðir í formi vöru eða þjónustu sem skila varanlegum verðmætum og atvinnu. Lögð er áhersla á klasasamstarf en það er ekki forsenda fyrir stuðningi úr Atvinnusköpun í sjávarbyggðum.

Í umsókn þarf að koma fram:
# Skýr lýsing á verkefninu
# Greining á nýnæmi verkefnisins
# Greinargóðar kostnaðar- og verkáætlanir
# Lýsing á væntum ávinningi fyrir sjávarbyggðir

Styrkir geta numið allt að 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og búnaði. Nánari upplýsingar veitir Arna Lára Jónsdóttir, verkefnastjóri Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, arnalara@nmi.is.