01/05/2024

Arnkötludalur 2008

150-sturla-bodvarssonAðsend grein: Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra
Á vef Bæjarins besta á Ísafirði þann 30. nóvember sl., birtist grein eftir Kristin H. Gunnarsson þingmann Framsóknarflokksins þar sem hann fjallar m.a. um vegaframkvæmdir á Vestfjörðum. Enn fremur birtist viðtal við þingmanninn á sama miðli, dagsett þann 1. desember sl.

Málflutningur Kristins er eins og fyrri daginn ein samfelld tilraun til þess að koma illu til leiðar á hinum pólitíska vettvangi og koma höggi á samstarfsmenn sína innan stjórnarflokkanna. Kristinn H. Gunnarsson heldur því  ítrekað fram í máli sínu að ríkisstjórnin fyrirhugi frestun á framkvæmdum á nýjum vegi um Arnkötludal og Tröllatunguheiði. Vonandi er það ekki ætlun þingmannsins að afvegaleiða lesendur þótt sú sé raunin.

Rétt er að minna á að vegur um Arnkötludal komst fyrst á dagskrá með því að ég sem samgönguráðherra lagði til að í það verk væri ráðist. Naut ég góðs stuðnings flestra þinmanna kjördæmisins. Ekki varð vart við sérstakan áhuga Kristins vegna þessa verkefnis á þeim tíma. Framkvæmdir við veg um Arnkötludal hefjast á næsta ári og mun verkið, þegar það er hafið, eiga sér eðlilegan framgang. Undirbúningur vegna nýrra verka sem þessa er í eðli sínu flólkinn og tímafrekur enda lagt upp úr að hugað sé vandlega að öryggis- og umhverfismálum. Þrátt fyrir frestun á framkvæmdum í sumar er gert ráð fyrir að hægt verði að aka um Arnkötludal á nýjum vegi árið 2008. Samhliða verklokum framkvæmda í Arnkötludal verður jafnframt séð fyrir endann á uppbyggingu Djúpvegar.

Vert er að minna á að með sölu Símans var jafnframt tekin ákvörðun um stórauknar framkvæmdir í vegagerð. Það er af og frá að verið sé að lækka framlög ríkisins til vegamála frá því sem Samgönguáætlun gerði ráð fyrir. Þá vil ég minna á að ég hef  rætt  um stór auknar framkvæmdir sem ég tel að séu nauðsynlegar. Um það þarf að ná sátt. Eigi þær hugmyndir mínar að að ná fram að ganga er mikilvægt að þingmenn kjördæmisins standi saman og þá ekki síst stjórnarliðar en telja verður að Kristinn H. Gunnarsson sé í þeim hópi sem þingmaður Framsóknarflokksins.

Það er hinsvegar rétt hjá þingmanninum að á árinu hafa framlög ríkisins til umferðaröryggismála verið aukin um allt að 1.000 m.kr. Sú aukning kemur m.a. til af frumkvæði samgönguráðuneytisins og í kjölfar kröftugrar umræðu um umferðaröryggismál. Vert er að minna á  mikla og stöðuga aukningu á umferð á megin umferðaræðum við höfuðborgina og hörmuleg umferðarslys á þeim leiðum. Með afgerandi hætti var ákveðið að bregðast skjótt við m.a. með aukinni áherslu á umferðareftirlit og sérstöku átaki í umferðaröryggismálum. Það er mál manna að með ákvörðun um að leggja fjármuni til umferðaröryggisaðgerða og með hertu eftirlliti hafi verið brugðist með skýrum hætti við kröfum þjóðarinnar um aukið öryggi í umferðinni. Það er því mjög undarlegt hjá þingmanninum að gera þær aðgerðir tortryggilegar með því að tengja þær færslu fjármuna vegna vegagerðar um Arnkötludal milli áranna 2007 og 2008.

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra
www.sturla.is