![Moksturstæki í Árneshreppi Moksturstæki í Árneshreppi](wp-content/uploads/vegamal/150-mokstursvel.jpg)
Vegurinn opnaðist nú um hádegið í Árneshrepp. Þá er búið að opna veginn í Kaldbaksvíkurkleif. Jarðýta fór norður í gærkveldi og var skriðan rudd í morgun. Árneshreppur er þá komin í vegasamband við umheiminn í fyrsta skipti á þessu ári. Að sögn Jóns Harðar Elíassonar rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Hólmavík er vegurinn aðeins fær jeppum.