22/12/2024

Árneshreppur í vegasamband

Moksturstæki í ÁrneshreppiVegurinn opnaðist nú um hádegið í Árneshrepp. Þá er búið að opna veginn í Kaldbaksvíkurkleif. Jarðýta fór norður í gærkveldi og var skriðan rudd í morgun. Árneshreppur er þá komin í vegasamband við umheiminn í fyrsta skipti á þessu ári. Að sögn Jóns Harðar Elíassonar rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Hólmavík er vegurinn aðeins fær jeppum.