Kvennakórinn Norðurljós er skipaður söngdúfum hér og þar af Ströndum og hefur starfað um árabil. Kórinn hefur haldið tónleika víða og er ávallt með afar skemmtilega dagskrá í gangi. Síðasta haust fór kórinn í vinabæjarheimsókn til Danmerkur og heillaði Årslevbúa með söng sínum. Þessi mynd er aftur tekin á Café Riis á Hólmavík síðasta sumar þar sem kórinn hélt skemmtilega og fjöruga tónleika fyrir gesti og gangandi, og við spyrjum: Hvaða þremur atriðum hefur verið breytt á neðri myndinni hér að neðan?
Lausnin birtist að venju næsta sunnudag hér á strandir.saudfjarsetur.is.