Ekki þurfti vefurinn strandir.saudfjarsetur.is að bíða lengi eftir svari frá Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra. Send var fyrirspurn um hvort hægt væri að fá staðfest þau tíðindi sem Jón Halldórsson skrifar í aðsendri grein, að þegar hafi verið ákveðið og staðfest að vegur um Arnkötludal yrði tilbúinn 2009. Í svari frá samgönguráðherra sem barst innan klukkustundar segir m.a.: „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort verði byrjað á Arnkötludal eða þverun Mjóafjarðar og öðrum framkvæmdum í Djúpi tengdu því. Þetta er ekki klappað og klárt fyrr en við höfum afgreitt Samgönguáætlunina."