Laugardaginn 3. apríl verður opið hús í nýju fjárhúsunum á Heydalsá milli kl. 13-16 og eru allir velkomnir. Nýbyggð fjárhúsin verða þá til sýnis ásamt bústofni bæjarins sem er um 620 fjár. Bygging fjárhúsanna hófst í ágúst 2007 og er verið að leggja lokahönd á verkið. Fjárhúsin eru 1246 fm að stærð og rúma 800 fjár. Yfirsmiður er Ómar Már Pálsson. Heitt verður á könnunni og léttar veitingar í boði, auk þess sem sýndar verða myndir frá byggingu fjárhúsanna.
Ljósmyndir frá byggingu húsanna frá Ragnari og Sigríði á Heydalsá.