Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt áætlun um úthlutun svokallaðra útgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2005 og félagsmálaráðherra hefur samþykkt þessa tillögu ráðgjafarnefndarinnar. Samkvæmt áætluninni fá sveitarfélög á Ströndum rúmar 38 milljónir í útgjaldajöfnunarframlög, Hólmavíkurhreppur fær mest eða rúmar 22 milljónir. Stærstu póstarnir í þessum framlögum tengjast íbúafjölda, skólaakstri í dreifbýli sem Jöfnunarsjóðurinn greiðir fyrir að mestu leyti og fjarlægðum innan sveitarfélaga, eins og fram kemur í töflu hér á eftir.
Þessi framlög til sveitarfélaganna fyrir einstaka þætti í rekstri þeirra eru greidd mánaðarlega og uppgjör er gert í desember.
Íbúafjölda |
Fjarlægðir |
Skólaakstur |
|
Sveitarfélag |
framlög |
innan sv.félaga |
í dreifbýli |
Árneshreppur |
534.071 |
230.327 |
214.272 |
Kaldrananeshreppur |
1.739.882 |
2.070.535 |
167.331 |
Bæjarhreppur |
1.874.929 |
235.659 |
5.643.020 |
Broddaneshreppur |
930.089 |
288.309 |
1.447.363 |
Hólmavíkurhreppur |
7.936.933 |
6.819.194 |
6.940.020 |
Fækkun |
Snjómokstur |
Samtals |
|
Sveitarfélag |
íbúa |
í þéttbýli |
útg.framlög |
Árneshreppur |
0 |
0 |
978.670 |
Kaldrananeshreppur |
38.079 |
309.429 |
4.325.256 |
Bæjarhreppur |
0 |
0 |
7.753.608 |
Broddaneshreppur |
76.159 |
0 |
2.741.920 |
Hólmavíkurhreppur |
0 |
542.641 |
22.238.789 |