Langar þig að komast í betri tengsl við þitt innra náttúrubarn? Þá er um að gera að skella sér á Náttúrubarnahátíð á Ströndum sem haldin verður 28.-30. júlí. Þar gefst fólki færi á að finna og rækta náttúrubarnið í sér á skemmtilegri dagskrá fullri af allskonar fróðleik og fjöri sem má sjá hér að neðan! Hátíðin er fyrir alla fjölskylduna og náttúrubörn á öllum aldri, börn og fullorðna! Náttúrubarnahátíðin verður haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Aðgangseyrir er 3.000 kr. en hægt er að kaupa sig inn á hvern dag fyrir 1.500 kr.
Það er frítt fyrir hátíðargesti að gista í tjaldi á Kirkjubóli sem er rétt hjá Sævangi. Einnig er frábært tjaldsvæði á Hólmavík og ýmsir gististaðir í nágrenninu. Sundlaugin á Hólmavík býður gestum hátíðarinnar sem eru 14 ára og yngri frítt í sund meðan á hátíðinni stendur og eldri borga hálft gjald.
Dagskrá hátíðarinnar:
Föstudagurinn 28. júlí
17:00 Stutt og skemmtileg gönguferð. Gengið frá Húsavíkurkleif að Sævangi.
18:30 Setning hátíðarinnar. Dagrún Ósk yfirnáttúrubarn segir nokkur orð. Gengið að veðurupplifunarstöðinni og framkvæmdur veðurgaldur til að tryggja gott veður alla helgina.
19:00 Tónleikar með hinni frábæru hljómsveit Ylju.
20:15 Náttúrubarnakviss. Skemmtilegur spurningaleikur fyrir alla fjölskylduna. Sauðfjársetur á Ströndum býður hátíðargestum upp á vöfflur, djús og kaffi að kostnaðarlausu.
22:30 Fjörusöngur við Sævang.
Laugardagurinn 29. júlí
11:00 Náttúrujóga, hugleiðsla og hljóðslökun með koparhörpu með Arnbjörgu hjá Jógahjartanu.
12:00 Sirkus sýning. Hluti sirkushópsins Melodic Objects sýnir Same Picture – Different Pose.
12:30 Náttúrufjör: Jurtalitun, unnið úr ull, unnið úr rekavið, tálgað, Strandahestar, Ynja Art með
myndlistarsýninguna Hlýnun, náttúrumarkaður, opið hús í tilraunastofunni og plastdýragarðinum. Ljósmyndamaraþon og fleira.
14:00 Trommutúttur: skemmtileg smiðja þar sem sköpunarkraftur og efniviður úr umhverfinu og náttúrunni er nýttur til trommu- og hljóðfæragerðar. Í framhaldinu verður haldinn trommuhringur þar sem allur hópurinn lætur ljós sitt skína og trommuna óma. Listrænn stjórnandi smiðjunnar er Arnar Snæberg Jónsson.
14:15 Skemmtileg og fræðandi gönguferð þar sem plöntur í umhverfinu verða skoðaðar með Hafdísi Sturlaugsdóttur hjá Náttúrustofu Vestfjarða.
16:00 Útieldun: spennandi smiðja þar sem náttúrubörn læra að kveikja eld, umgangast hann og náttúruna af virðingu og um leið nýta afurðir náttúrunnar í mat og drykk.
16:15 „Hvers vegna á ég að vernda náttúruna og hvernig fer ég að því?“ Stórfróðlegt spjall með umhverfisstjórnunarfræðingnum Stefáni Gíslasyni.
18:00 Fuglafjör: Trítlað um teistuvarpið.
20:00 Snillingurinn Svavar Knútur með tónleika.
21:30 Drauga- og tröllasögur í sagnahúsinu!
Sunnudagurinn 30. júlí
11:00 Skemmtilegt spjall um sjósund með þjóðfræðingnum Pétri Húna Björnssyni. Hefur þig alltaf langað að prófa en aldrei þorað? Nú er tækifærið! Þeir sem áhuga hafa láta vaða í sjóinn eftir fróðleikinn. Við mælum með að skella sér í heita pottinn á Hólmavík eftir sjóinn!
13:00 Hinn stórskemmtilegi töframaður Ingó Geirdal með sýningu.
14:00 Útileikir á Sævangsvelli.
16:00 Fjölskyldufjallganga. Kirkjubólshringurinn genginn. Gangan tekur um það bil 2 klst. og hækkun er 220 m.