Úrslitakeppni í karókísöng vinnustaða verður haldin í Bragganum á Hólmavík annað kvöld og þar etja kappi átta söngvarar sem komust áfram úr útsláttarkeppninni fyrir hálfum mánuði. Allir söngvarararnir hafa loksins komið sér niður á hvaða lög þeir hyggjast syngja en hver þeirra mun taka tvö lög. Dregið verður um það í kvöld í hvaða röð þeir birtast. Búist er við miklum fjölda áhorfenda og skipulag í sal verður mikið breytt frá því sem áður hefur verið. Engin borð verða í salnum þannig að langflestir ættu að fá sæti að þessu sinni. Þetta er í annað árið í röð sem þessi skemmtilega söngvarakeppni er haldin og mikil tilhlökkun er fyrir samkomunni og ekki síst hjá keppendum sem stefna að því að sýna sín bestu andlit.
Fimm manna dómnefnd hefur verið ákveðin, en hún tekur ákvörðun um hver stendur uppi sem sigurvegari í ár og salurinn fær síðan kjósa um skemmtilegasta söngvarann. Dómnefndin er skipuð Elsu Björk Sigurðardóttir, Gunnlaugi Sighvatssyni, Sigríði Óladóttir, Steinunni Þorsteinsdóttir og Valdísi Kristjánsdóttir.
Veitingastaðurinn Café Riis stendur fyrir keppninni og Bjarni Ómar Haraldsson tónlistarkennari heldur utan um hana. Café Riis verður með sérstakt karóki-tilboð á hlaðborði sem hefst klukkan 17:30 sem kostar eingöngu 1800 krónur og 900 krónur fyrir 12 ára og yngri. Einnig verður boðið upp á að afgreiða pizzur út. Bjarni Ómar og Stebbi spila svo fyrir dansi á Café Riis eftir keppnina.
Á morgun kl. 13:00 verður lokaæfingin og þá er öllum 18 ára og yngri velkomið að mæta og fylgjast með frammistöðu keppendanna.
Hér að neðan má sjá nöfn söngvaranna sem taka þátt í úrslitakeppninni annað kvöld og fyrir hverja þeir keppa og hvaða lög þeir munu syngja.
Flytjandi | Keppir fyrir | 1. lag og upph. flytjandi | 2. lag og upph. flytjandi |
Arnar S. Jónsson |
strandir.saudfjarsetur.is |
Dream A Little Dream Of Me – Ozzie Nelson |
Crazy Little Thing Called Love – Queen |
Ásdís Leifsdóttir |
Skrifstofa Strandabyggðar |
Stand By Your Man – Tammy Wynette |
Don’t Stop Me Now – Queen |
Eyrún Eðvaldsdóttir |
Bíla- og kranaverkstæði Danna |
Walking On Sunshine – Katrina And The Waves | Síðasta sumar – Nylon |
Halldór Jónsson | Vegagerðin | Losing My Religion – R.E.M | Born to Be Wild – Steppenwolf |
Lára Guðrún Agnarsdóttir |
Grunnskólinn Hólmavík |
If Tomorrow Never Comes – Ronan Keating |
Love Really Hurts Without You – Billy Ocean |
Salbjörg Engilbertsdóttir |
Skrifstofa Strandabyggðar |
Blue – LeAnn Rimes |
All Out Of Luck – Selma |
Sigurður Atlason |
Strandagaldur |
That´s Life – Frank Sinatra |
Everybody Needs Somebody To Love – The Blues Brothers |
Sigurður Á. Vilhjálmsson |
Kaupfélag Steingrímsfjarðar |
When You Say Nothing At All – Ronan Keating |
Manstu ekki eftir mér? – Stuðmenn |