28/04/2024

Mölin #8 – Sigríður Thorlacius með jólatónleika

mol1

Jólatónleikar Malarinnar fara fram á Malarkaffi á Drangsnesi sunnudagskvöldið 15. desember næstkomandi. Þar kemur fram söngkonan Sigríður Thorlacius ásamt Guðmundi Óskari Guðmundssyni og Bjarna Frímanni Bjarnasyni. Þau munu leika hugljúf jólalög og koma fólki endanlega í jólagírinn í hlýju og notalegu umhverfi. Sigríði Thorlacius þarf varla að kynna fyrir fólki. Hún hefur á stuttum ferli skipað sér á sess með fremstu og dáðustu söngkonum þjóðarinnar. Hún vakti fyrst athygli fyrir einstaka rödd sína með hljómsveitinni Hjaltalín og hefur í kjölfarið sungið inn á fjölda hljómplatna, komið fram við ólíklegustu tækifæri með rjóma íslenskra listamanna auk þess sem hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem „Besta röddin“ árið 2009.

Á tónleikunum munu Sigríður og félagar leika lög af nýútkominni plötu sinni sem ber nafnið Jólakveðja. Á plötunni syngur Sigríður lög eftir Guðmund Óskar og Bjarna Frímann við vel valda jólatexta frá ýmsum tímum. Lögin eru einstaklega hlý og falleg og má segja að á plötunni nái Sigríður og samverkamenn hennar að fanga hinn sanna anda jólanna. Það ætla þau líka að gera á Mölinni.

Venju samkvæmt mun Borko leika nokkur lög á undan gestum Malarinnar, að þessu sinni í félagi við Prins Póló. Húsið opnar kl. 20:30 en tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Miðaverð er 2000 kr.

Hér má hlýða á lag af nýju plötunni: http://www.youtube.com/watch?v=W9lAKUbhd3k.

mol2