28/04/2024

Jólatónleikar Lóuþræla á Borðeyri

300-louthraelar-holm

Karlakórinn Lóuþrælar heldur jólatónleika í Barnaskólanum á Borðeyri fimmtudaginn 11. desember kl. 20:30 og Félagsheimilinu Hvammstanga miðvikudaginn 17. desember kl. 20:30. Stjórnandi kórsins er Guðmundur St. Sigurðsson og undirleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir. Einsöngvari er Úlfar Trausti Þórðarson. Kynnir er sr. Magnús Magnússon. Hugvekju flytur Guðný Hrund Karlsdóttir. Á söngskránni eru jóla- og aðventulög, íslensk og erlend. Enginn aðgangseyrir.  Heitt súkkulaði og smákökur að loknum tónleikum. Tónleikarnir eru í boði Landsbankans á Hvammstanga og styrktir af Menningarráði Norðurlands vestra.