05/05/2024

Friðarhlaup frá Borðeyri til Hólmavíkur

645-fridarhlaupid

Í dag, miðvikudaginn 15. júlí, munu Friðarhlauparar koma hlaupandi til Hólmavíkur frá Borðeyri og áætla að vera komnir á Hólmavík kl. 15:00. Börn og fullorðnir eru hvattir til að mæta við Kaupfélagið um 20 mínútur í 3 og hlaupa með seinasta spölin. Þeir sem hafa áhuga á að hlaupa 5 km geta einnig mætt á afleggjarann við Hrófá fyrir kl. 14:30. Ef einhverjir geta hugsað sér að hlaupa lengri vegalengdir er best að fylgjast vel með hlaupurunum og stökkva inn í þegar það býðst. Þetta er í 10. sinn sem Friðarhlaupið fer hringinn í kringum landið.