27/04/2024

ADHD á Mölinni á Drangsnesi

adhd

Tónleikaröðin Mölin hefur senn göngu sína þriðja veturinn í röð og byrjar heldur betur með flugeldasýningu að þessu sinni. Hljómsveitin ADHD mun opna tónleikaröðina veturinn 2014-2015 með tónleikum á Malarkaffi á Drangsnesi þriðjudagskvöldið 21. október næstkomandi. ADHD hefur verið starfandi síðan árið 2007 en sveitina skipa bræðurnir Óskar og Ómar Guðjónssynir sem leika á saxófón og gítar, ofurtrymbillinn Magnús Trygvason Eliassen og píanóviðundrið Davíð Þór Jónsson. Hljómsveitin var upphaflega sett saman fyrir Blúshátíð á Höfn í Hornafirði þar sem spilaðir voru standardar í bland við eigið efni. Samstarfið gekk vonum framar og náðu meðlimir sveitarinnar einstakri tónlistarlegri tengingu. Áframhaldandi samstarf var því eðlilegt næsta skref.

ADHD leikur framsækna en um leið aðgengilega og melódíska jazztónlist. Spilagleði sveitarinnar er einstaklega hrífandi enda eru meðlimir sveitarinnar meðal fremstu hljóðfæraleikara landsins og hika ekki við að láta ljós sitt skína, án þess þó að varpa skugga á meðleikara sína, lagasmíðar og heildarsvip. Sveitin hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir tónlist sína og flutning, m.a. hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin oftar en einu sinni og verið tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlanda.

Nýverið kom út fimmta hljómplata ADHD sem heitir einfaldlega ADHD 5 og er sveitin nú á ferð um landið til að kynna hana og verða, eins og áður sagði, á Malarkaffi þriðjudagskvöldið 21. október. Húsið opnar kl. 21:00 og venju samkvæmt mun Borko hefja leikinn um hálftíma síðar.  Miðaverð er 2.000.- kr.