19/05/2024

Mugison á Norðurfirði 2. júlí

Það verða tónleikar með Mugison að kveldi sunnudagsins 2. júlí á Norðurfirði í Árneshreppi. Fjörið hefst kl. 21:00 og segist Mugison hlakka til að koma í göldróttan Norðurfjörðinn. Miðaverðið á tónleika galdramannsins Mugison er kr. 2.500.-