25/04/2024

Verslun og söluskáli KSH sameinuð

Ákveðið var á stjórnarfundi Kaupfélags Steingrímsfjarðar nú um miðjan febrúar að fara í viðamiklar breytingar og endurskipulagningu á verslunarrekstri félagsins á Hólmavík. Fela þær breytingar í sér að rekstur söluskála og verslunar KSH verður sameinaður undir einu þaki í húsnæði Kaupfélagsins að Höfðatúni 4. Til að þetta sé mögulegt er nauðsynlegt að byggja við norðurenda verslunarhússins og er ætlunin að sú viðbygging rými veitingasal söluskálans. Stefnt er á að byrja framkvæmdir í vor eða snemmsumars og að nýr söluskáli verði tekinn í notkun að vori 2011. 

Þessi endurskipulagning kallar á talsverðar breytingar á tilhögun
verslunar- og lagerrýmis í húsnæði KSH. Fyrirsjáanlegt er að
núverandi verslunarrými muni að hluta nýtast undir söluskála og
sameiginlegt anddyri verslunar og söluskála. Að sjálfsögðu verður
leitast við að þessar framkvæmdir trufli sem minnst starfsemi
Kaupfélagsins og valdi viðskiptavinum þess sem minnstu raski.

Í
sambandi við þessar breytingar leitar Kaupfélag Steingrímsfjarðar eftir
starfsmanni til u.þ.b. 6 mánuða til að aðstoða við framkvæmdir og
endurskipulagningu á verslunar- og lagerrýmum, ásamt því að sinna
almennum störfum og sinna afleysingum í byggingarvörudeild félagsins.
Þeir sem áhuga hafa geta nálgast frekari upplýsingar hjá
kaupfélagsstjóra, í síma 455-3101 eða á netfanginu jon@ksholm.is.
Umsóknarfrestur er til loka dags mánudaginn 8. mars og þarf viðkomandi
að geta hafið störf sem fyrst.