27/04/2024

Yfirlit yfir veðrið í nóvember

Samkvæmt yfirliti frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík var nóvember umhleypingasamur eins og tveir fyrri mánuðir. Mjög miklar hitasveiflur voru og nóvember var ekki eins úrkomusamur og undanfarnir mánuðir. Úrkomulausir dagar í mánuðinum voru 8 og mældist úrkoman 78,5 mm. Mestur hiti var þann 16. þá 11 stig og þann 26. 10,6 stig. Mest frost var þann 25. þá 5,9 stig og 5,8 þann 22. Mesta snjódýpt mældist 18 cm að morgni þann 1. en alhvít jörð var talin vera í 8 daga, flekkótt í 12 daga og auð í 10 daga. Sjóveður var rysjótt í mánuðinum, en sæmilegt dagana 5., 7.-12., 21. og 23. nóvember.

Yfirlit eftir dögum í nóvember:
 
1.-6.: Mest suðlægar vindáttir, gola eða kaldi en hvassviðri um tíma 3. og 6., þurrt þann 1. annars slydda, rigning eða skúrir og él, frost var þann 1. hiti frá -6 stig upp í +8 stig.
7.-14.: Mest vestlægar vindáttir eða breytilegar, hægviðri, kul upp í stinningsgolu, þurrt 7. og 8., annars frekar lítil úrkoma, en þó smá rigning, slydda eða snjókoma, hiti frá 5 stigum og niðrí 4 gráðu frost.
15.-16.: Sunnan og síðan vestan kaldi og stinningskaldi, lítilsháttar rigning, vel hlýtt hiti 4 til 11 stig.
17.: Norðan hvassviðri eða stormur, snjókoma, frost 0 til 3 stig.
18.-22.: Suðvestan mest kaldi eða stinningsgola en allhvass 19. og 20., að mestu þurrt í veðri, hiti frá 8 stigum og niðrí 6 stiga frost.
23.: Suðaustan kaldi, snjókoma, slydda, rigning, hiti 1 til 4 stig.
24.: Norðan allhvass í fyrstu síðan kaldi, snjóél, frost 2 til 6 stig.
25.: Austan stinningsgola, þurrt í veðri, dregur úr frosti, frost 1 til 5 stig.
26.-27.: Suðvestan mest kaldi, snjókoma, slydda, rigning mest aðfaranótt 26., annars úrkomulítið, hiti 1 til 10 stig.
28.: Austan gola í fyrstu síðan stinningskaldi, þurrt, frost í fyrstu enn hlýnaði, frost frá 2 stigum upp í 3 stiga hita.
29.-30.: Austnorðaustan og síðan norðaustan, allhvass í fyrstu síðan hvassviðri eða stormur, rigning síðan smá él, hiti frá 3 stigum niðrí 1 stigs frost.

Tekið saman af Jóni G Guðjónssyni veðurathugunarmanni í Litlu-Ávík.

 

Kambur hinum megin við fjörðinn, tekið milli élja þann 1. des.  – ljósm. Jón G.G.