06/05/2024

Viðamikið markaðsátak fyrir Vestfirði

 markadsatak

Sveitarfélögin á Vestfjörðum ásamt samstarfsaðilum á landsvísu og ferðaþjónum á Vestfjörðum hafa ákveðið að sækja fram og eru að fara af stað í stórt þriggja ára markaðsátak. Verkefninu verður stýrt af Markaðsstofu Vestfjarða, en þetta er stærsta markaðsverkefnið sem sveitarfélögin hafa farið í frá upphafi. Verkefninu er ætlað að vekja athygli á Vestfjörðum sem áfangastað ferðamanna og ýta undir þá jákvæðu ímynd sem Vestfirðir hafa nú þegar. Verkefnið snýst að töluverðu leyti um stafrænt ferðalag um Vestfirði sem verður samansett af áhugaverðu myndefni sem sýnir það sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða. Mjög margir koma að borðinu til þess að svona stórt og ítarlegt verkefni geti gengið upp, ber þar að nefna samstarfsaðila líkt og Icelandair, Flugfélag Íslands, Hertz, Símann, N1 og ferðaþjóna á Vestfjörðum.

Markaðsátakið verður unnið með Tjarnargötunni og segir Díana Jóhannsdóttir markaðsfulltrúi Markaðsstofu Vestfjarða spennandi tíma vera framundan í ferðaþjónustu á Vestfjörðum og gaman sé að sjá hveru vel allir taki í að vinna að verkefninu.

„Við erum ákaflega spenntir fyrir þessu flotta verkefni. Við erum að byrgja okkur upp af nýjum búnaði og hlökkum til að fanga íslenska nátturu og koma henni til skila á nýstárlegan máta,“ segir Einar Ben, annar eigandi Tjarnargötu.

Á meðfylgjandi mynd eru Baldvin, Díana og Einar Ben.