Veturinn er brostinn á, rétt eina ferðina, öllum að óvörum. Fyrsti vetrardagur var á laugardag og um svipað leyti lét snjórinn sjá sig á sunnanverðum Ströndum. Fjallvegirnir þrír yfir í Reykhólahrepp úr Strandabyggð eru nú auglýstir ófærir, Þorskafjarðarheiði, Tröllatunguheiði og Steinadalsheiði. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is var á þvælingi um sunnanverðar Strandir um helgina og smellti af meðfylgjandi myndum þegar veturinn hélt innreið sína.
Skálholtsvík og Stikuháls í baksýn
Séð yfir Kollafjörð og Steingrímsfjörð af Ennishálsi
Kollafjarðarnes af Ennishálsi – ljósm. Jón Jónsson