18/04/2024

Vestfjarðavíkingar reyna kraftana

Keppni hófst í Vestfjarðavíkingnum í dag í sundlauginni á Hólmavík á Ströndum. Þar reyndu kraftakarlarnir með sér í sundlaugargreininni sem felst í að svamla og burðast með tunnur bakkanna á milli á sem skemmstum tíma. Veðrið var frábært á meðan á keppninni stóð, en það var Grétar Guðmundsson sem sigraði í þessari fyrstu grein og hlaut að launum Svansbikarinn sem veittur er fyrir besta árangurinn í sundlauginni ár hvert. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is var á staðnum og smellti myndum af kraftajötnunum fáklæddu. Einnig bregður fyrir áhorfendum og starfsmönnum, sjónvarpsmanninum góðkunna Samúel Erni Erlingssyni og kraftajötninum Magnúsi Ver Magnússyni sem var kynnir.

Keppt verður á eftirtöldum stöðum: 

Fimmtudagur 10. júlí 
– Hólmavík kl. 14:00 – Sundlaugargrein.  
– Heydalur kl. 18:00 – Legsteins ganga.  

Föstudagur 11. júlí 
– Ísafjörður kl. 11:00 – Öxul lyfta.
– Flateyri kl 15:00 – Steinatök.   
– Þingeyri kl. 17:00 – Kútakast.  

Laugardagur 12 júlí 
– Suðureyri kl. 11:00 – Réttstöðulyfta.   
– Ísafjörður kl. 15:00 – Herkulesarhald (sterkasti áhorfandinn getur unnið GSM-síma).
– Ísafjörður kl. 16:00 – Hleðslugrein.

1

Kraftakappar

frettamyndir/2008/580-vest19.jpg

frettamyndir/2008/580-vest17.jpg

frettamyndir/2008/580-vest16.jpg

frettamyndir/2008/580-vest15.jpg

frettamyndir/2008/580-vest13.jpg

frettamyndir/2008/580-vest12.jpg

frettamyndir/2008/580-vest11.jpg

frettamyndir/2008/580-vest9.jpg

frettamyndir/2008/580-vest8.jpg

frettamyndir/2008/580-vest7.jpg

frettamyndir/2008/580-vest5.jpg

frettamyndir/2008/580-vest4.jpg

frettamyndir/2008/580-vest3.jpg

frettamyndir/2008/580-vest1.jpg

Kraftakarlar, sól og sumar á Hólmavík – Ljósm. Jón Jónsson