Verktakinn Ingileifur Jónsson ehf sem var lægstbjóðandi í vegagerðina um Arnkötludal er byrjaður að flytja tæki og tól sem nota á við vegagerðina í Gautsdal. Það styttist því að vegagerðin hefjist fyrir alvöru í Gautsdalnum og verða höfuðstöðvar vinnuflokksins í Króksfjarðarnesi. Ekki er gert ráð fyrir að unnið verði að ráði Strandamegin í Arnkötludalnum á þessu ári. Þrír undirverktakar taka þátt í verkinu, Fossvélar á Selfossi sjá um efnisvinnslu, Suðurverk um sprengingar og Borgarverk um klæðningu. Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki haustið 2009.
Verktakarnir hafa m.a. leigt félagsheimilið Vogaland í Króksfjarðarnesi
Stórvirkum vinnuvélum á væntanlega eftir að fjölga á næstunni
Séð fram Gautsdal
Innar í dalnum. Gilsfjarðarmegin kemur vegurinn niður Gautsdal, en hæðin eða "geirinn" sem klífur Geiradalur í tvennt, og bærinn Valshamar stendur undir, skilur á milli Gautsdals og Bakkadals sem vegurinn um Tröllatunguheiði liggur um.
Ljósm. Björn Samúelsson