03/05/2024

Veðrið í maí 2008

Örkin, ljósm. Jón G.G.Að venju hefur Jón G. Guðjónsson veðurathugunarmaður tekið saman yfirlit yfir veðrið frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík. Þar kemur fram að mánuðurin var fremur kaldur fram til 22. maí, en síðast snjóaði í byggð þann 10. Mjög hlýtt var í veðri frá 23. maí og út mánuðinn. Í heildina tekið virðist maí 2008 vera einn hlýjasti maímánuður til margra ára.  Mikið var um þokuloft í mánuðinum í Árneshreppi og nokkur úrkoma var fram til 20. maí.  Jörð á láglendi var fyrst talin auð að morgni 13. maí, ræktuð tún orðin vel græn og gróin og úthagi farin að grænka.

Yfirlit yfir maí 2008:

1.-5.: Norðaustan eða norðan, kaldi eða stinníngskaldi, él, slydda, snjókoma, síðan rigning og súld og þokuloft, hiti frá 0 stigum upp í 7 stiga hita.
6.-7.: Breytilegar vindáttir, kul, súld, þoka eða þokuloft, hiti frá 3 stigum uppí 11 stig þann 7.
8.-10.: Norðaustan stinníngsgola eða stinníngskaldi og allhvass þann 9., súld, slydda, snjókoma, hiti frá 4 stigum niðrí 2 stiga frost.
11.-22.: Hafáttir eða breytilegar vindáttir, logn, kul, eða gola, oft þokuloft, súld eða rigning, en þurrt 14. og 21-22. Hiti 2 til 10 stig.
23.-27.: Suðvestan eða suðlægar áttir, gola, stinníngsgola eða kaldi, en allhvass um tíma þann 26. Norðan um tíma aðfaranótt 24., þá kólnaði niðri 3 stig, smá rigning eða skúrir, annars þurrt í veðri, hiti 8 til 13 stig.
28.-30.: Hafáttir eða breytilegar, andvari eða kul, úrkomulaust, hiti 7 til 12 stig.
31.: Vestan stinníngsgola, úrkomuvottur, hiti 8 til 13 stig.

Úrkoman mældist 52,8 mm.
Þurrir dagar í mánuðinum voru 9.
Mestur hiti mældist þann 26. þá 14,1 stig og þann 23. þá 14 stig.
Mest frost mældist þann 9. og 10. þá -1,5 stig.
Jörð var talin alhvít í 2 daga.
Jörð var talin flekkótt í 10 daga.
Auð jörð því í 19 daga.
Mesta snjódýpt mældist þann 10. maí, þá 9 sentimetrar.
Slæmt í sjó 1.-4. maí og 9.-10., annars mjög gott í sjóinn.

Tekið saman af Jóni G. Guðjónssyni veðurathugunarmanni í Litlu.-Ávík.