29/03/2024

Umsóknarfrestur til Menningarráðs rennur út á föstudaginn

645-alltahreinu5

Menningarráð Vestfjarða minnir á að umsóknarfrestur til ráðsins rennur út á föstudaginn kemur, 22. febrúar. Hægt er að skila inn umsóknum sem viðhengi í tölvupósti eða í gegnum vefsíðuna www.vestfirskmenning.is til miðnættis þann dag. Á vefsíðu ráðsins má einnig nálgast umsóknareyðublöð og allar leiðbeiningar. Hægt er að sækja um styrki í tveimur flokkum, bæði til afmarkaðra menningarverkefna og líka stofn- og rekstrarstyrki til menningarstofnana í fjórðungnum. Starfsemi Menningarráðsins byggist á samningi milli ríkisins og sveitarfélaga á Vestfjörðum og er tilgangur styrkjanna að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Umsóknir og verkefni hverju sinni eru borin saman á samkeppnisgrundvelli.

STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR

Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú í annað skipti eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki. Umsækjendur þurfa að skila ítarlegum upplýsingum um starfsemi sína. Ákveðið hefur verið að við úthlutun stofn- og rekstrarstyrkja 2013 verði horft sérstaklega til umsækjenda sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:   

# Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna og/eða menningararfs.
# Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi.
# Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu.

VERKEFNASTYRKIR

Jafnframt er auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki til afmarkaðra menningarverkefna, en vakin er athygli á að á árinu 2013 verður aðeins auglýst eftir verkefnastyrkjum í þetta eina skipti. Fylgiskjöl með umsóknum um verkefnastyrki eru afþökkuð, allt sem skiptir máli á að koma fram í umsókninni sjálfri. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun verkefnastyrkja 2013 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:  

# Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.
# Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.
# Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.
# Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.
# Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í lista- og menningarlífi.

Umsóknarfrestur um styrki er til og með 22. febrúar 2013.

Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu
menning@vestfirdir.is.